laugardagur, ágúst 18, 2007

Cancun og slæmar fréttir.

Sun is in the sky oh why oh why ?
Would I wanna be anywhere else


1970 ákváðu nokkrir bissness menn að starta strandbæ frá grunni að hætti Acapulco. Inní tölvuna var skellt inn sól, strönd, hótel, breiðstræti, veitingastaðir ofl og út kom bærinn Cancun, Ibiza Ameríkanans, einsog vinkona mín lýsti honum. Hér er ekkert sem minnir á Mexíkó. Tilgangur minn er að hitta félagana Dóra og Jón áður en haldið verður til Kúbu.

En þá eru það slæmu fréttirnar. Er ég kem hingað eftir 15 tíma rútuferð, þá frétti ég að á leiðinni er fellibylurinn Dean. Svo að ég sé fram á að gera það sem allir mundu gera. Hlaða myndavélabatterýin, tæma minniskortin og koma mér í góða aðstöðu til að mynda! Mér sýnist að hann muni fara beint hér yfir. Ég endurskoða kannski afstöðu mína á morgun, les fréttir frá hvernig fór á Jamaíka.

þriðjudagur, ágúst 14, 2007


Mexíkó er æði og maturinn sinnum tveir, en enga kunna þeir ensku. ég hef þurft að taka krasskors í tungumálinu og les ég spænsku fræðin líkt og um nba-fréttir væri að ræða.

Á síðustu dögum hef ég heimsótt borgirnar Puebla, sem þekktust er fyrir sitt nýlendu-spænska yfirbragð og sínar 70 kirkjur.

Næst var það Oaxaca sem er einnig svipuð með nýlendubyggingar, stræti og torg að spænskum sið. Þar í grennd er hin forna borg hvíta fjall (Monte Albán) sem byggð var í 500 metra hæð yfir dalnum á flötum fjallstopp með 360 gráðu útsýni. Var hún byggð á árunum 300-700 bjuggu þar 25.000 manns er mest var.

Kom mér svo til Tehuantepec sem er 30.000 manna bær. Þar voru tívólí tæki á báðum torgunum og mikið stuð. Ég er ekki frá því að þetta séu tækin frá Hveragerði forðum daga. Þarna sá ég engan túrista.

Er núna kominn til borgarinnar San Cristóbal de Las Casas. Hingað flúðu Mæjarnir (Maya) er veldi þeirra hrundi á láglendinu fyrir 1000 árum en borgin stendur nokkuð hátt. Hún er þekkt fyrir að vera nokkuð félagsleg, mannleg, listræn og hafa hin ýmsu mannúðarsamtök hér bækistöðvar. Uppáhald so far.

Hvað um það, einhverjir hafa kvartað yfir því að of margar “wikipedia” myndir séu fylgjandi blogginu en engar glæstar myndir af mér. Er ég því sammála, en ég hef líkt og aðrir ákaflega gaman af því að skoða myndir af mér sjálfum. Ég mun því láta undan þrýstingi og birta myndir hér á síðunni af mér að framkvæma hinar ýmsu kúnstir í næstu tilkynningarskildu.




















miðvikudagur, ágúst 08, 2007

Viva México!


Lenti um miðnætti í Mexíkó borg og við tók að finna hostelið sem ég hafði bókað ásamt leigubílstjóranum mínum. Hann talaði ekki ensku frekar en ég spænsku.

Hef rölt um gamla sögulega miðbæinn í kringum Plaza de la Constitucíon ásamt að hafa farið á stærstu sýningu sem haldin hefur verið á verkum og ævi Frida Kahlo í tilefni af því að 100 ár eru frá fæðingu hennar. Lista-, ljósmynda- og minjasöfn hafa verið á vegi mínum ásamt að ég kom mér til hinnar fornu borgar Teotihuacán sem er um 50km frá.

Hér í Mexíkó borg eru lögreglumenn á hverju götuhorni að því er virðist. Mexíkó borgarbúar eru litlir og pattaralegir og hér líður mér virkilega sem risa, en ég fann ekki fyrir svona miklum hæðamun er ég var Asíu. Veður ljómandi, í kringum 20 gráður, skyggni ágætt.





fimmtudagur, ágúst 02, 2007

Aftur til framtíðar..


Ég tók flug klukkan 17:30 í Seoul og lenti samdægurs klukkan 11:00 í Seattle eftir 10 tíma flug. Nótt varð því að degi og græddi ég heilan dag. Ég var því kominn á slóðir landnámsmannana Bó og Péturs Vil á vesturströnd kanalands, Seattle. Skoðaði EMP sem er tónlistar og vísindaskáldsögusafn í eigu Paul Allen. Þar er saga Seattle senunnar, Jimi Hendrix og rafmagnsgítarsins rakin á magnaðan hátt. Einnig mátti skoða ansi marga hluti úr frægum kvikmyndum. Skoðaði Pike markaðinn, fyrsta starbucks, miðbæinn, gamla holræsakerfið, Key Arena og allt heimilislausa fólkið fór ekki framhjá nokkrum manni. fór einnig á víkingahátíð ásamt að líta við á krókódíla barinn þar sem flest grunge böndin byrjuðu sinn feril. Ég rétt missti af skotbardaga þarna í miðbænum um miðjan sunnudag. Annars líkaði mér gríðar vel við þessa borg.

Næst lá leið mín yfir til Kanada og það til Vancouver. Fyrsta kvöldið voru Kínverskir innflytjendur með flugeldasýningu yfir höfninni og nærri 300.000 manns að horfa á. Rölti í gegnum Stanley garðinn sem er stærsti almenningsgarður í Norður-Ameríku og mun stærri en mig grunaði, tók hálfan dag að koma mér til baka. Reyndar er þetta nú eiginlega bara skógur með göngustígum hér og þar. Mér líður hvergi betur en í kringum hávaxin tré, líklega tengt því að ég las fátt annað en Tarzan í æsku. Er semsagt enn í Vancouver á leið uppí fjöll á svæði sem kallað er Whistler. Þar verða vetrar ólympíuleikarnir haldnir 2010. jájá..