laugardagur, september 15, 2007

Velkominn heim..


Ég er kominn heim til Íslands. Var minntur rækilega á það er ég stóð á bolnum á miðju BSÍ plani að bíða eftir fari í kuldanum. Jakka hef ég ekki þurft að nota síðan í fjalllendi Indónesíu fyrir einhverjum mánuðum síðan.
Í Kankún þá hitti ég þá frændur Jón og Dóra og förum við saman til Kúbu og Nýju Jórvík. Ég vissi að marga Ameríska bíla væri að finna á Kúbu en ekki að hlutfallið væri 50% og rest lödur og moskvít. Hvað um það.. Ég verð samt að hrósa happi með tónleikana sem ég hitti á er ég var í New York. Ég sá Artic Monkeys í Central Park og Damien Rice í MSG. Hér má finna nokkrar myndir af mér á ferðalögum þangað og hingað.

Smella hér!